Samkomulag um GATT-samningana

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 13:43:57 (1469)

[13:43]
     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Ég fagna því að fyrirhugaður er fundur um málið í nefndinni. Mér skilst að það sé að frumkvæði stjórnarandstæðings ekki stjórnarsinna, en mér hefði þótt við hæfi ef hæstv. utanrrh. hefði haft frumkvæði að því að kynna þetta samkomulag eða þetta tilboð áður en það fór á síður fjölmiðla og til erlendra aðila.