Samkomulag um GATT-samningana

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 13:45:24 (1471)

[13:45]
     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
    Virðulegi forseti. Svo sem kunnugt er af fjölmiðlum var á mánudag ekki komið það samkomulag sem tókst í gær, alla vega ekki fyrir hádegi, og ég held því að það hafi verið fyllilega ástæða til fyrir hæstv. ráðherra að boða til fundar. Ég tek svör hans sem svo að hann hafi ekki talið efni til þess að kynna málið fyrir utanrmn. sem vissulega er í hans verkahring að eiga samskipti við. En eins og kunnugt er hefur orðið nokkur misbrestur á því samstarfi.