[13:52]
Svavar Gestsson :
Virðulegi forseti. Næstkomandi laugardag gefst landsmönnum kostur á því að ganga að kjörborði til þess að greiða atkvæði um sameiningu sveitarfélaganna eftir tilteknum tillögum sem lagðar eru fyrir frá umdæmanefndum. Samkvæmt upplýsingum sem komu fram á fundi í Reykjavík nýlega, og ég beini orðum mínum til hæstv. félmrh., er varið milli 25--30 millj. kr. í áróður af þessu tilefni af hálfu stjórnvalda aðallega með einum eða öðrum hætti.
Ég tel að það sé út af fyrir sig eðlilegt að stjórnvöld noti fjármuni til þess að kynna tilteknar staðreyndir og framkvæmdaatriði í stjórnkerfinu. Ég tel það hins vegar óeðlilegt að verja fjármunum úr ríkissjóði til þess að hafa áhrif á skoðanamyndun fólks. Ég tel að uppsetning mála af hálfu félmrn. í þessu efni sé hættuleg og óeðlileg og geti orðið þeim mikilvæga málstað sem menn bera uppi í þessu máli til verulegs ógagns.
Ég tel einnig að þær yfirlýsingar sem fram hafa komið frá hæstv. félmrh. séu ekki til að styrkja lýðræðislegt innihald þessara kosninga því miður þegar hún segir á fundi í Keflavík í gærkvöld að ef menn ekki samþykki sameininguna muni lögþvingun vera næsta skrefið, væntanlega þá af hálfu stjórnvalda. Ég tel að hótanir af þessu tagi séu ósmekklegar og ég spyr hæstv. félmrh.: Óttast hún ekki að vinnubrögð af þessu tagi, bæði í sambandi við fjármunina og hótanirnar, gætu orðið til þess að veikja niðurstöðu þeirrar atkvæðagreiðslu sem fram undan er nk. laugardag?