Verkefnaflutningur til sveitarfélaga

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 14:07:52 (1491)

[14:07]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegi forseti. Það liggur í hlutarins eðli og ég svaraði því áðan að hin smærri sveitarfélög geta ekki tekið við svo viðamiklum verkefnum eins og nú er rætt um nema um verulegar sameiningar væri að ræða. Það er skýrt og hefur komið fram áður og ég tel að það sé líka skoðun Sambands ísl. sveitarfélaga.