Flutningur verkefna til sýslumannsembættanna

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 15:26:57 (1511)

[15:26]
     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það er aðeins eitt atriði sem er mér til nokkurrar umhugsunar í ræðu hv. síðasta ræðumanns og ég vildi gjarnan fá úr því skorið hvort hann sé sammála fyrri framsögumanni málsins, en ég gat ekki betur heyrt en sá framsögumaður hafnaði því að fækka sýslumannsembættum.