Flutningur verkefna til sýslumannsembættanna

38. fundur
Miðvikudaginn 17. nóvember 1993, kl. 15:58:38 (1524)

[15:58]
     Gísli S. Einarsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Vegna spurninga hv. þm. Jóhanns Ársælssonar um samþykkt þessa fjárlagafrv. í þingflokki Alþfl. þá er því til að svara að þetta frv., þskj. nr. 1, er rammar sem hafa verið unnir á undanförnum árum og unnir þannig að þeir hafa tekið ýmsum breytingum í meðförum þingsins. Þó að það sé samþykkt að leggja fram svona skjal þá er það gert af minni hálfu með fyrirvara varðandi þetta málefni og fyrir mér í mínum þingflokki hefur þetta mál aldrei verið kynnt til afgreiðslu. Þó svo að menn séu að vitna í minn ástsæla formann, hæstv. utanrrh. Jón Baldvin, um að hann hafi svarað því til að Alþfl. hafi ekki gert athugasemd varðandi þetta mál þá er það eðlilegt ef það hefur ekki verið spurt um það eða beðið um afgreiðslu á því.