[14:02]
Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. fer með rangt mál þegar hann talar um forherðingu. Hann kann íslensku og skilur það að þegar viðbrögðin eru þau að það er fallist á réttmæti ábendinga og gerðar ráðstafanir til þess að aðfinnsluefnin endurtaki sig ekki þá er það ekki forherðing, það er að taka tillit til réttmætra ábendinga. En um leið verður það að koma skýrt fram að þegar við segjum að umboðsmaður Alþingis er ekki dómstóll og kveður ekki upp úrskurði þá er rétt að segja, hann kemur fram aðfinnslum og ábendingum um það sem betur mætti fara en einmitt vegna þess að hann er ekki dómstóll þá erum við ekki að ræða úrskurði og þá væri ekkert tilefni til umræðunnar. Það er einfaldlega svo að þegar um er að ræða álitamál varðandi lagatúlkun hefur umboðsmannsembættið haldið þar fram ákveðnum hlutum sem utanrrn.

að höfðu nánu samráði við hina færustu lögfræðinga fellst ekki á. Það er í alla staði eðlilegt og felur ekki í sér neina lítilsvirðingu í garð embættis umboðsmanns.