Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 17:51:20 (1619)

[17:51]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Ég heyri það alveg greinilega, virðulegi forseti, að hv. þm. Egill Jónsson vonar að málin þróist áfram eins og gerðist í sumar, að hæstv. landbrh. hafi áfram forræði á þessum málum. En það er engan veginn ljóst miðað við þessa samningsgjörð sem nú er verið að gera.