Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 17:59:15 (1625)

[17:59]
     Egill Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vitnaði í skýrslu Þjóðhagsstofnunar að því er varðaði framhald samninganna og ítreka það öðru sinni að stærsti hluti þessa máls er óunninn og það er áreiðanlega rétt sem kom hér fram hjá hv. síðasta ræðumanni að þar veldur hver á heldur. Ég ber ekki sérstaklega mikinn ugg í brjósti í þeim efnum.
    Að því er varðaði svo það sem ég minntist á í sambandi við Hagfræðistofnun háskólans þá var ég að átelja að það skyldu komnar fram meiningar í sjónvarpi sem ekki væri hægt að fá upplýsingar um eftir öðrum leiðum.