Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 18:42:46 (1641)

[18:42]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég verð því miður að segja það að þá hljóma orð hv. þm. hér áðan hálf innantóm í þessu samhengi að lýsa vantrausti á formann annars stjórnarflokksins en í hinu orðinu segja að hann styðji ríkisstjórnina og þá væntanlega þar með það tilboð sem ríkisstjórnin hefur núna sett fram í GATT-viðræðunum. Í mínum huga er á engan hátt annan hægt að túlka þessi orð.