Landbúnaðarþáttur GATT-samningsins

39. fundur
Fimmtudaginn 18. nóvember 1993, kl. 19:34:08 (1653)

[19:34]
     Jón Helgason (andsvar) :
    Herra forseti. Ég er að sjálfsögðu ánægður að heyra að hv. þm. skuli styðja það sem ég hef rækilega undirstrikað að ég teldi mjög mikilvægt að landbrn. færi með þessi mál. Mér virðist eftir orðum hæstv. landbrh. að það sé sannarlega ekki vanþörf á því að styðja ötullega að því viðhorfi. Því eins og ég sagði þá er óvissan um þetta algjörlega óviðunandi.