[19:50]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra tók undir það sem hefur komið fram hjá nokkrum þingmönnum, að það sé nauðsynlegt að styrkja forræði landbrn. þegar kemur að því að framfylgja samningum sem við höfum gert og innihalda ákvæði um frjálsari innflutning á búvörum en verið hefur fram að þessu. Hæstv. ráðherra kaus hins vegar fyrst og fremst að ræða það í sögulegu samhengi að það hefði kannski ekki verið síður æskilegt að gera það einhvern tímann áður. En þess vegna ítreka ég enn og aftur spurningu mína um það hvað fólgst í samkomulagi ráðherranna nú um styrkingu landbrn. varðandi innflutning á búvörum og þá vísa ég aftur til þess að þetta mál var nánast fullunnið og fyrir því þingmeirihluti á síðasta vori. Hvað ætlar hæstv. ráðherra sér að gera varðandi þetta mál? Eigum við von á því á næstu dögum að hér komi fram frv. frá ríkisstjórninni í þessa veru? Ég veit að ekki mun standa á hv. landbn. að taka til við þá vinnu á ný.