[17:35]
Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir að bera upp þessa fsp. og ráðherrum tveimur fyrir þeirra undirtektir sem ég heyri og þann skilning sem er á þessum málum. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt að aðgerðir verði samræmdar hið snarasta til að styrkja stöðu nýbúa í samfélagi okkar sem oft og tíðum er þeim mjög framandlegt og þekking þeirra á samfélaginu iðulega minni en skyldi. Það hlýtur að gera stöðu þeirra veikari sem flytjast hingað til landsins að kunna ekki full skil á því samfélagi sem við lifum í og þar með aðstæður þeirra til þess að spjara sig í samfélaginu verri. Þar af leiðandi held ég að það þurfi að koma til mjög fljótlega sameiginlegt átak á borð við það sem hæstv. menntmrh. kynnti og aðgerðir að fylgja í kjölfarið.