Félagslegar aðstæður nýbúa

41. fundur
Mánudaginn 22. nóvember 1993, kl. 17:40:13 (1726)


[17:40]
     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) :
    Virðulegur forseti. Það hefur komið fram í máli mínu og hæstv. menntmrh. að nauðsynlegt sé að móta heildarstefnu í málefnum nýbúa og að sett verður nefnd til þess að skoða heildarstefnumótun í málum þessa hóps. Það atriði sem síðasti ræðumaður spurði um tel ég að verði tekið inn í þá heildarendurskoðun en ég nefndi líka í mínu máli hér áðan að við erum að skoða einstaka þætti þessa máls sem hægt væri að flýta óháð þessari heildarstefnumótun. Ég mun taka það upp í samráði við menntmrh. hvort eitthvað sé hægt að gera í þessu máli.