Tekjustofnar sveitarfélaga

42. fundur
Þriðjudaginn 23. nóvember 1993, kl. 15:53:14 (1766)


[15:53]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Í tilefni af upphafsorðum hv. þm. um sögu hæstv. fjmrh. í umræðunum um skattinn um skrifstofu- og verslunarhúsnæði, þá verð ég nú að spyrja hv. þm. hvort það hefði ekki verið eðlilegt að hann hefði látið þess getið að hann væri hér að lesa upp kafla úr óbirtri ævisögu hæstv. fjmrh. og hefði kannski tekið þarna, ég veit ekki hversu frjálsri hendi, kafla úr fyrri ræðum hæstv. fjmrh. því að eins og ég man þær þegar ég sat hér undir löngum ræðum hæstv. fjmrh. veturinn 1989--1990, þá gat þessi ræða verið klippt þaðan út úr nánast orðrétt.