Ríkisreikningur 1992

42. fundur
Þriðjudaginn 23. nóvember 1993, kl. 17:48:16 (1789)


[17:48]
     Jón Kristjánsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég vil beina því til hæstv. forseta hvort það væri ekki mögulegt að fresta þessari umræðu. Ég hafði fengið upplýsingar um að hún yrði ekki í dag og reyndar að fjmrh. yrði ekki viðstaddur en hann er kominn aftur. Ég veit reyndar líka að annar yfirskoðunarmaður ríkisreiknings er farinn úr húsinu en ég býst við að hann hefði viljað taka þátt í umræðunni svo ég beini því til hæstv. forseta hvort það væri ekki mögulegt að fá þessari umræðu frestað.