Tekjuskattur og eignarskattur

42. fundur
Þriðjudaginn 23. nóvember 1993, kl. 18:00:49 (1793)


[18:00]
     Flm. (Kristinn H. Gunnarsson) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir ágætar undirtektir hv. þm. Jónu Valgerðar Kristjánsdóttur. Það gleður mig að menn hafa velt þessu fyrir sér og ég þykist vita að það sé vegna fyrri starfa þingmannsins sem hún gjörþekkir þessi mál og áttar sig á ranglætinu sem felst í núverandi kerfi. En ég vil endurtaka þakkir mínar fyrir hlý orð í garð málsins.