Tilkynning um dagskrá

43. fundur
Miðvikudaginn 24. nóvember 1993, kl. 14:23:48 (1814)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti hafði ákveðið að taka þessi mál á undan þar sem í 12. máli er um framhaldsumræðu að ræða og að í 13. máli eru tíu hv. þm. á mælendaskrá. Þess vegna ætlaði forseti að taka þetta mál á undan. Það er einn hv. þm. á mælendaskrá í málinu um Hæstarétt. Ef flm. frv. telur að sú umræða taki ekki langan tíma þá er það forseta að meinalausu að taka það mál núna.