Lánskjör og ávöxtun sparifjár

44. fundur
Fimmtudaginn 25. nóvember 1993, kl. 12:42:38 (1871)


[12:42]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Af því að þetta var nú andsvar við minni ræðu og ég skal fúslega taka á mig að axla alla þá ábyrgð sem minn flokkur kann með öðrum að eiga í þessu máli en þá vil ég samt ekki taka að mér að axla þá ábyrgð sem sú spurning sem hér var borin fram beindist að, enda tók ég nú þannig að hún hafi fyrst og fremst beinst að öðrum aðilum, þ.e. þeim sem eru við stjórnvölinn núna.