Lánskjör og ávöxtun sparifjár

44. fundur
Fimmtudaginn 25. nóvember 1993, kl. 12:53:12 (1873)

     Forseti (Kristín Einarsdóttir) :
    Forseti vill að gefnu tilefni minna hv. þm. á 54. gr. þingskapa þar sem segir að kenna skuli þingmann við kjördæmi hans og kosningu eða nefna hann fullu nafni. Þessu beinir forseti til hv. síðasta ræðumanns, en einnig til annarra ræðumanna sem hér hafa talað og nefna þingmann ekki fullu nafni.