[16:14]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Bara til að leiðrétta smámisskilning þá er það ekki rétt eftir mér haft eða skilið að ég hafi sagt að öll þau 72.000 tonn þorskígilda sem voru flutt á milli skipa hafi gengið kaupum og sölum heldur að svarið hafi falið í sér að ótrúlegt magn kvóta gekk kaupum og sölum í samfélaginu, eins og ég sagði orðrétt. Ég hafði samband við fyrirspyrjanda sem er búinn að lesa úr þessum tölum mjög kyrfilega, sveitunga hv. þm., og ég treysti honum vel til að þekkja það sem liggur þarna á bak við. Hann mat það svo, og hafði haft samband við fleiri út af því, að þessi viðskipti næmu þó milljörðum þrátt fyrir þennan fyrirvara. Ég vil að það komi skýrt fram að hér er um raunverulega --- og það stendur, raunverulega mikla sölu að ræða þótt sumt af þessu sé í hagræðingarskyni, enda tel ég að það hafi raunar komið síðar fram í máli hv. þm.