Skattlagning aflaheimilda

44. fundur
Fimmtudaginn 25. nóvember 1993, kl. 16:30:43 (1911)


[16:30]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég hlustaði á ræðu hæstv. utanrrh. með athygli og hjó eftir niðurlagsorðum hæstv. ráðherra þegar hann sagði að það væri lagt á veiðileyfagjald í dag með viðskiptum sem næmu tugum milljarða árlega. ( ÓÞÞ: Tugum milljarða? Það er mismæli.) ( Utanrrh.: Fyrirgefðu, það er mismæli, það eru 3 milljarðar.) Nú hef ég ekki séð neinar upplýsingar um þetta þannig að ég vil biðja hæstv. ráðherra að upplýsa mig nánar um málið.