[18:19]
Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það álit sem hæstv. sjútvrh. vitnar til átti að vera grundvöllur að því að semja drög að lagafrv. Vegna ágreinings í ríkisstjórninni og stjórnarflokkunum hefur það lagafrv. ekki verið lagt fram. Ég get því ekki fallist á að það varpi skýru ljósi á fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar í þessum efnum. Og ég hlýt því enn á ný að ítreka kröfu mína til hæstv. forseta í ljósi þess að hæstv. sjútvrh. getur ekki af eðlilegum ástæðum upplýst til fullnustu áform á þessu sviði, að hæstv. fjmrh. verði hér kvaddur til þingfundar og svari þeim fyrirspurnum sem til hans hefur verið beint og mun verða beint þegar hann kemur.