Varamaður tekur þingsæti

45. fundur
Mánudaginn 29. nóvember 1993, kl. 15:00:27 (1949)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 25. nóv. 1993:
    ,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi næstu vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varaþm. Alþb. í Vesturl., Ragnar Elbergsson oddviti, Grundarfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``
    Undir þetta bréf ritar Jóhann Ársælsson, 3. þm. Vesturl.
    Kjörbréf Ragnars Elbergssonar hefur verið rannsakað og samþykkt. Hann hefur hins vegar ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því samkvæmt 2. gr. þingskapa að vinna drengskaparheit að stjórnarskránni.