Fundur í Þingvallabænum 1. desember

47. fundur
Þriðjudaginn 30. nóvember 1993, kl. 13:45:14 (2002)

     Forseti (Gunnlaugur Stefánsson) :
    Þá er lokið umræðum um ,,störf þingsins`` og verður nú tekið til við að afgreiða dagskrármál. ( HG: Forseti. Það var verið að kveðja sér hljóðs hér.) Vegna frammíkalls úr sal vill forseti segja það að hann hafði lokið þessum umræðum og gengið til dagskrár og forseti mun halda áfram að stjórna fundi samkvæmt dagskrá og þingsköpum. Fyrir liggur að ganga til atkvæða um fyrsta mál á dagskrá.