[18:40]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Vissulega þurfum við að einbeita okkur að hinum stóru og þar sem ég er sammála hv. þm. að það taki tíma að breyta hugarfari þá þarf að byrja því að það tekur þann tíma frá því að byrjað er og áfram. Og ef það á einhvern tíma að gera eitthvað í þessu, þá þarf að byrja með áróður og auglýsingar og umræðu um þetta mál í samfélaginu.