Skattamál

47. fundur
Þriðjudaginn 30. nóvember 1993, kl. 18:41:26 (2064)


[18:41]
     Ingi Björn Albertsson (andsvar) :
    Aðeins þetta, virðulegi forseti. Meðan skattar eru jafnháir og þeir eru og þjónustugjöld eru jafnmikil, meðan bætur eru skertar, þá er auðvitað ákveðinn hvati til þess fyrir fólk að leita sér leiða fram hjá skattkerfinu. Þetta tvennt verður því að fylgjast að, lækkun álaga og breytt hugarfar, það fylgist að.