Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Áður en lengra er haldið vill forseti geta þess að fyrirhugað er að halda hér áfram fundahöldum
til kl. 8 án þess að gera hlé en þá verði gert kvöldmatarhlé ef ástæða er til. Gert er ráð fyrir að ljúka einnig 2. umr. um þriðja dagskrármálið á þessum fundi.
Þetta vill forseti láta koma fram núna strax en það er kvöldverður í veitingastofunni fyrir þingmenn hvort sem gert verður hlé eða ekki.