Skattamál

47. fundur
Þriðjudaginn 30. nóvember 1993, kl. 20:08:41 (2093)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Andsvörum er lokið. Til máls tekur hv. 5. þm. Reykv. ( IBA: Var ekki forseti búinn að tilkynna að það yrði hlé kl. 8?) Forseti hefur nú ákveðið að gera ekki hlé heldur halda þessari umræðu áfram og freista þess að ljúka henni fljótlega þar sem forseti hefur heyrt það á þingmönnum að þeir óska frekar eftir að sá háttur verði á hafður.