Skattamál

47. fundur
Þriðjudaginn 30. nóvember 1993, kl. 21:06:07 (2109)


[21:06]
     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það er ekkert að því að hafa áhyggjur af hluthöfum sínum. Við erum hins vegar sum í hlutafélagi allra Íslendinga og það er hlutverk okkar hér að hafa áhyggjur af þeim hluthöfum, hluthöfum skólakerfisins, heilbrigðiskerfisins, vegakerfisins og þeirra sem eiga hlut í því sem við öll höfum unnið fyrir í sameiningu. Um hina hluthafana hirði ég minna, af einhverjum ástæðum virðist stóra hlutafélagið okkar allra ævinlega standa sig best.