Lánsfjárlög 1993

47. fundur
Þriðjudaginn 30. nóvember 1993, kl. 21:58:19 (2129)

[21:58]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Já, það hefur auðvitað komið í ljós sem upplýst var á fundi efh.- og viðskn., að það er búið að vinna sem svarar fyrir þessar 50 millj. kr. eða allt að því, en nú er verið að leita eftir heimild til þess að ráðstafa fjármunum í þetta verkefni. Á grundvelli þess vil ég taka undir athugasemdir hv. þm. Guðrúnar J. Halldórsdóttur, að það er auðvitað alveg óásættanlegt að fyrst sé verkið unnið og síðan sé verið að leita eftir heimildum til fjármagns í það.