Lánsfjárlög 1993

48. fundur
Fimmtudaginn 02. desember 1993, kl. 11:05:40 (2133)

[11:05]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Hér er um það að ræða að breyta lánsfjárlögum yfirstandandi árs. Ég tel að þau sýni eins og ég gat um í umræðum að efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar var ekki raunsæ í fjárlögum. Ég viðurkenni hins vegar þá staðreynd að við stöndum frammi fyrir halla sem verður að brúa og þess vegna skrifaði ég undir þetta nál. með fyrirvara en samþykki frv. að öðru leyti.