Fjáraukalög 1993

48. fundur
Fimmtudaginn 02. desember 1993, kl. 19:04:06 (2173)


[19:04]
     Guðrún Helgadóttir (andsvar) :

    Hæstv. forseti. Nú hafði ég af eðlilegum ástæðum ekki tíma til að hlusta á fréttir Ríkisútvarpsins, sem nú standa yfir, en hv. 11. þm. Reykv., sem hefur lítið útvarpstæki hér, var svo vinsamlegur að segja mér frá því að landlæknir hefði verið að ræða það rétt í þessu að slysum hefði fjölgað á sjúkrahúsum vegna minnkandi þjónustu. --- [Fundarhlé.]