[21:04]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
Herra forseti. Það er rétt að ítreka að það verður flutt frv. um að nota aflaheimildir Hagræðingarsjóðs í þessu skyni. Ríkisstjórnin gaf út yfirlýsingu þar um á sínum tíma og við hana verður staðið.