[21:16]
Frsm. minni hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (um fundarstjórn) :
Herra forseti. Ég minntist á í ræðu minni áðan að hæstv. heilbrrh. hefði haft samband við mig. Hann gerði það í kvöldmatartímanum og spurði mig hvort ég mundi beina til hans orðum af því að hann vissi að ég var fyrstur á mælendaskrá. Ég sagðist ekki mundu gera það og hann hefur verið við umræðuna í dag en okkur fór ekkert annað á milli. Ég vil láta það koma fram að ég sagði eingöngu svo að ég mundi ekki beina til hans spurningum í minni ræðu. Annað veit ég ekki um hans fjarvistir.