[22:05]
Frsm. minni hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar) :
Herra forseti. Hæstv. heilbrrh. talaði um að málflutningur okkar hefði gengið dálítið sitt í hvora áttina í dag í málefnum spítalanna. Það var alveg rétt að forsvarsmenn Ríkisspítalanna komu fyrir fjárln. í morgun og vildu fá umbun fyrir að hafa náð árangri í rekstri, en ,,nota bene`` þetta var spítalinn sem slapp við sameininguna. Hæstv. heilbrrh. sagði að það væri sóun í því að byggja upp tvö hátæknisjúkrahús. Ég skildi það á honum. Ég er honum alveg sammála. En það er alveg nákvæmlega það sem var verið að gera með sameiningu Landakots og Borgarspítala að byggja upp tvö hátæknisjúkrahús sem er varað við. Hér segir um sameiningu Borgarspítala og Landspítala: ,,Öflugri spítali sem veitir mótvægi við Ríkisspítala og kemur í veg fyrir einokun á sjúkrahúsþjónustu. Gefur stjórnvöldum möguleika á samanburði kostnaði, afköstum og gæðum.``