[22:14]
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það mál vel vera að hæstv. heilbrrh. finnist hér vera talað bara um tíu aura og fimmkalla þegar verið er að ræða um nokkur hundruð millj. kr. Ég er alveg viss um það að sjúklingum úti í bæ og út um allt land sem þurfa að borga þessa tíu aura og fimmkalla sem hann kallar svo finnst það enginn smápeningur.
Fjáraukalög 1993
48. fundur
Fimmtudaginn 02. desember 1993, kl. 22:14:01 (2200)