[23:21]
Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
Hæstv. forseti. Ég get út af fyrir sig verið sammála hæstv. forsrh. um það að vonandi er það svo að þegar til lengri tíma er litið þá verki þetta svona. Og það er auðvitað alveg ljóst og því hefur margoft verið haldið fram hér, sem annars staðar í þessari umræðu, að bankarnir hafi verið sjálfum sér verstir með hinum háu vöxtum, og fjármálakerfið, og síðan gífurlegri afskriftaþörf sem þeir hafi orðið að taka inn í sína reikninga á móti, vegna þess að þeir hafi í raun verið að kyrkja viðskiptavini sína í greip sinni með hinum háu vöxtum.
Ég óttast hins vegar að íslenska bankakerfið, íslenski fjármálaheimurinn, en síðast en ekki síst þó atvinnulífið á Íslandi og heimilin á Íslandi eigi langt í land með að komast í þá stöðu sem þessir hlutir eru í í Noregi. Ég óttast það mjög. Ég held að íslensku bankarnir, a.m.k. sumir hverjir, hafi ákaflega litið borð fyrir báru til þess að taka á sig það sem í öllu falli er líklegast að verði verulegt tímabundið tap í framhaldi af þessum aðgerðum, ef þeir þrjóskast þá ekki bara áfram við og halda uppi vaxtamun og háum vöxtum. En það er í raun og veru það sem þeir eru að gera. Og í viðtali við Morgunblaðið í dag viðurkennir formaður bankastjórnar Seðlabankans, fyrrv. hæstv. viðskrh., að skýringin á því að bankarnir hreyfi ekki vöxtunum nú á síðasta vaxtabreytingadegi sé þessi slæma afkoma bankanna og sú fákeppni sem hér ríkir á markaði. Og ég endurtek bara það sem ég sagði áðan. Það er út af fyrir sig ágætt að hæstv. forsrh. sé bjartsýnn á að þetta gangi allt saman vel en ég held að hann ætti að hafa báða fætur á jörðinni, vera raunsær og átta sig á því að það er enn, því miður, allt of snemmt að fagna fullum sigri í þessum efnum, allt of snemmt. Og það væri fróðlegt að eiga orðaskipti við hæstv. forsrh. um þetta t.d. eftir þrjá mánuði og má vel vera að við gerum það.