Fjáraukalög 1993

48. fundur
Fimmtudaginn 02. desember 1993, kl. 23:36:37 (2219)

           [23:36]
     Frsm. minni hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég fagna þessari yfirlýsingu hæstv. forsrh. að þessi frv. komi fram í næstu viku. Hann sagði reyndar: ,,Ég bind vonir við það``. Svo einhver fyrirvari er enn inni. En aðrir hæstv. ráðherrar eru ekki til þess að staðfesta þetta svo ég bind einnig vonir við það, svo ég noti orðalag hæstv. forsrh., að frv. komi fram í næstu viku. Eru það nú nokkur tíðindi og nokkur niðurstaða af þessari umræðu ef svo verður.