Fjáraukalög 1993

48. fundur
Föstudaginn 03. desember 1993, kl. 00:20:35 (2223)

           [00:20]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég vildi gjarnan að hv. þm. mundi fjalla meira um það efni sem ég spurði um sérstaklega þó ég sé ánægður með það sem þegar er komið og sérstaklega um það sem ég bað um að hann nefndi, hvaða aðgerða hann ætlaðist til að ríkisstjórnin gripi til varðandi Kjaradóm og reyndar fleiri atriði sem hann hefur hjá sér og ég ætla ekki að draga tímann heldur hlusta á hv. þm.