Svar við fyrirspurn um kaup á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna

51. fundur
Þriðjudaginn 07. desember 1993, kl. 13:48:42 (2254)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti hefur nú þegar upplýst að þessar athugasemdir munu komast til skila og bendir jafnframt á að hæstv. ráðherra situr hér í salnum. Nú er liðinn sá tími samkvæmt þingsköpum sem athugasemdir má gera um störf þingsins í upphafi þingfundar. Það eru 20 mínútur samkvæmt þingsköpum og því verður ekki hægt að taka fleiri á mælendaskrá undir þeim lið að þessu sinni.