Prestssetur

51. fundur
Þriðjudaginn 07. desember 1993, kl. 15:42:18 (2276)


[15:42]
     Guðni Ágústsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég sá nú ekki að þetta væri eitt einasta andsvar við minni ræðu hjá hv. 1. þm. Norðurl. v. Hins vegar sé ég að hann hefur það fram yfir hæstv. kirkjumálaráðherra að hann hefur lesið og spekúlerað í 4. gr. þessa frv.