[17:07]
Anna Ólafsdóttir Björnsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Afskaplega væri það gott ef hv. 1. þm. Austurl. hefði rétt fyrir sér. Ég óttast að hann hafi það ekki en ég er svo sannarlega reiðubúin að leggja honum lið til þess að kanna hvort það væri mögulegt.
Ég verð nefnilega, þótt ég sé afskaplega ósátt við þetta frv., að ætla að þetta sé einmitt í takt við þær leikreglur sem meiri hluti Alþingis hefur ákveðið að við færum eftir og þar af leiðandi þá beri okkur að gera þetta. En reynslan mun að sjálfsögðu svo og þær upplýsingar sem við fáum í sjútvn. skera úr um hvort okkar hefur rétt fyrir sér. Ég verð að viðurkenna að það væri afskaplega gott ef hv. síðasti ræðumaður hefði rétt fyrir sér.
Varðandi það að þarna sé einungis verið að tala um að erlendir aðilar eignist lítils háttar hlut í íslenskum uppboðsmörkuðum þá finn ég því ekki stað að það sé verið að takmarka eignaraðildina við lítils háttar hlut. Ég held að það sé algjörlega opið og það sé þá nákvæmlega eftir því hver hugur þessara erlendu aðila er, hvaða möguleika þeir hafa á að kaupa sig inn í slíka markaði hér á landi. Þannig að ég vil gera athugasemd við það.
En ég vænti þess að þetta verði kannað ítarlega og þeim spurningum sem hv. þm. varpaði fram í ræðu sinni verði svarað við vinnu málsins í hv. sjútvn.