Breyting á búvörulögum

52. fundur
Miðvikudaginn 08. desember 1993, kl. 13:52:35 (2357)


[13:52]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Ég tek undir ummæli hv. þm. að það væri auðvitað æskilegt ef tekist hefði að leggja frv. um þessi efni fram hér á Alþingi. Það er unnið að gerð slíks frv. og ég vona að það geti legið fyrir mjög fljótlega.