Breyting á búvörulögum

52. fundur
Miðvikudaginn 08. desember 1993, kl. 13:55:35 (2361)


[13:55]
     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Það er auðvitað laukrétt hjá hv. þm. að þann búvörusamning sem nú liggur fyrir bar að endurskoða á þessu hausti. Viðræður við bændur eru hafnar um það og verið að reyna að leita leiða til þess að bæta stöðu þeirra og veitir ekki af eins mikill og samdrátturinn hefur verið í sauðfjárframleiðslunni og eins verður að líta til mjólkurframleiðslunnar til lengri tíma litið.
    Ég vil taka fram að það er fullt samráð milli mín og forustumanna bænda um þau frumvörp sem lögð hafa

verið fram og hefur ekki komið ágreiningur upp um það.