Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1994

52. fundur
Miðvikudaginn 08. desember 1993, kl. 14:21:59 (2375)

[14:21]

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Forseta hefur borist svohljóðandi bréf frá þingflokki Samtaka um kvennalista:
    ,,Hér með er óskað eftir að ræðutími í umræðum um frv. til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum árið 1994, 263. mál, verði tvöfaldaður sbr. 3. mgr. 55. gr. þingskapa. Frv. er mjög viðamikið og tekur til breytinga á fjölmörgum lagabálkum.``
    Forseti hefur ákveðið að verða við þessari beiðni.