Umræða um skýrslu Byggðastofnunar

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 10:49:59 (2400)


[10:49]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir :
    Virðulegi forseti. Það er alls ekki rétt sem hér hefur komið fram að ég hafi fengið að heyra þetta á fundi þingflokksformanna í gær því ég sat ekki þann fund. Ég var upptekin við aðra vinnu í fjárln. og mætti ekki á þennan fund.