Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 16:43:54 (2416)


[16:43]
     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er hárrétt hjá hv. 3. þm. Austurl. að hv. landbn. kom mjög glöggum og greinargóðum athugasemdum og miklu og góðu nefndaráliti á framfæri. En það er nú eins og það er að ekki er hægt að verða við öllum óskum, en að sjálfsögðu mun fjárln. skoða öll mál fyrir 3. umr. en hér úr þessum ræðustól verða engar yfirlýsingar gefnar um það að sinni.