Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 17:47:43 (2426)


[17:47]
     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Herra forseti. Mér finnst samningar orðnir mjög nákvæmir ef verið er að eyðileggja skuldbindandi greiðslusamninga um verk sem á að taka hvorki meira né minna en fimm ár með því að flytja úr því eina millj. kr. Það finnst mér með ólíkindum. Ég heyri á hv. 5. þm. Austurl. að hann er ekki tilbúinn að ræða þetta mál aftur í hv. fjárln. Hann segir einfaldlega: Ég tek ekki þátt í þessu. Og þá er það ljóst.