Fjárlög 1994

53. fundur
Fimmtudaginn 09. desember 1993, kl. 17:56:23 (2435)


[17:56]
     Frsm. meiri hluta fjárln. (Sigbjörn Gunnarsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Vegna ræðu hv. 2. þm. Austurl. og í framhaldi af yfirlýsingu hæstv. heilbrrh. varðandi hjúkrunarheimilið á Fáskrúðsfirði, vil ég taka fram að ég mun beita mér fyrir að yfirlýsing hæstv. heilbrrh. verði tekin á dagskrá á fundi fjárln. milli 2. og 3. umr.